Sigga Sæta

14.08.2008 07:02:02 / siggas84

jú er vöknuð til að horfa á leikinn

Leikurinn byrjaði ágætlega en as i write, þá er staðan 18-13 fyrir kóreumönnum, öllum þessum lee chu eða lee chung... ;) eða hvað þeir nú heita, en þetta er ekki alveg nógu gott, en... við vonum það besta,  en ég segi bara


Áfram Ísland ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 23:35:14 / siggas84

Nei ekki dauð úr öllum æðum enn, ótrúlegt en satt ;)

Já, er á lífi, hef bara verið tölvulaus og allslaus frá því að talvan hérna heima sprakk... já hún sprakk:$8| ekki spurja mig hvernig en þetta var ekki einu sinni eins árs gömul talva...
Allavega ég er bara að vinna og vinna á millijón, var á tímabili í 5 vinnum, og jú þú spyrð mig eflaust hvernær á sólahringnum ég svaf... en ég svaf á milli 2-7 sirka var sem sagt að vinna stanslaust frá 8 á morgnanna til 1 á næturna ;) en ég er komin niðrí 2 vinnur sem er ágætt er sem sagt enn að vinna í SS og elliheimilinu, en er að vísu að fara að hætta þar og að fara að taka mér 3 vikna frí (en ég er ekki að fara að leggjast bara upp í rúm, nei) er að fara að hjálpa Ingunni, systur mömmu, að tína kartöflur, þeim vantar svo hjálp, og hver er það sem réttir þeim hjálparhönd, nú auðvita hún ég... og erum við turtildúfurnar að fara að hjálpa þeim... Alltaf er ég til í að hjálpa, en ekki hvað ;)


En það er ekkert að frétta svo sem, bara þetta same old same old,  en við fórum á Drangsnes um versló( langaði að vísu geggjað mikið til eyja en...) en það var rosalega gaman, það var sungið og dansað og drukkið og mikið fíflast, enda bullkóngurinn var þarna, maðurinn hennar hrafnhildar og bróðir hennar(jú ég veit hvað þeir heita, anyway  þetta var svona had to be there moment til að skilja... :) ) og svo var brenna og brekkusöngur, eyjar hvað sko...?? hehe, en það var geggjað, gugga þú misstir að svaka fjöri ;) en ég veit að þú skemmtir þér vel með honum heimi þínum ;) efast ekki um að það hefði verið fjör þar sem að Björk og einhverjir hippar mættu á svæðið....

Hurðu ég var að kaupa mér svona dansmottu við playstation tölvuna og þetta er geggjað gaman... eins og í singstar og buzz, þá get ég alveg misst mig í þessu, en þetta er sko geðveikt erfitt í leiðinni og það er alveg hægt að svitna við þetta sko, þannig að ef þið eigið 7.000 kall og viljið vera í ræktinni heima eða bara skemmta ykkur og öðrum, endilega fjárfestið í þessu, þetta er gaman, en nóg í bili, er að fara að drífa mig háttinn er að fara að vakna á morgun kl.5:30 er að fara út að labba/skokka já er sko enn í átaki, hætti að vísu þarna á tímabili, en er byrjuð aftur og við erum núna 4 saman ;) allavega bæjó

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 11:14:30 / siggas84

Kompás


Jæja ég vona að sem flestir hafi séð kompás í gær.... 'Eg get alveg satt fyrir mitt leyti að mig langaði að gráta úr mér augun.... Það hlýtur að vera að hægt að gera eitthvað í þessu máli ég segi ekki  annað, þetta er náskylt mér og ég  á bara ekki orð um að maðurinn sem grunaður er í málinu hafi bara verið leyft að fara úr landi.... :cry::cry: En ég vona að allt  eigi eftir að ganga upp og að sá sem gerði þetta finnist..... réttlætið sigrar að lokum....

Hef annars ekkert að segja
 Er núna byrjuð að vinna á elliheimilinu hérna heima frá 8-12 svo fer ég í ss frá 12-20 og svo er ég í pilates og þolfimitímum og svo er ég að fara í sund á hverjum degi ;) það er bara harkan 6 hjá mér ;) en ekki hvað :d:d

 Ég bið bara að heilsa í bili ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 23:31:54 / siggas84

Þá er litli bró...

Já hann Ingimar er í Boston, í hjartaaðgerðinni... og ef þið viljið fylgast með þá er síðan :
 www.barnaland.is/barn/70923

Ef þið viljið fá að skoða sendiði mér þá línu og ég læt ykkur fá aðgangsorðið ;)  siggas84@hotmail.com

En annars er allt gott að frétta, aðgerðin gekk bara vel, en honum er haldið sofandi útaf háum blóðþrýstingi...

allavega ég bið bara að heilsa
Þarf að vakna snemma í leikfimi á morgun.. kl 6:20 ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 23:03:29 / siggas84

aha...

Get ekki sagt að það sé ekkað að frétta.... Er komin í pilates núna 3 í viku, var bara 2 en hún byrjaði að koma hingað svo að ég fer 2 á hellu og 1 hérna heima ;) anyway..  svo fer ég aðeins út að hlaupa er ekkert of dugleg við það(kenni pínulítið kuldanum um, en mér finnst gaman að fara út að hlaupa í snjónum ) eins og ég ætlaði mér en er að stefna á að missa þessi 10-15 kg :) þarf ekkert að vera akkúrat en gott að stefna að einhverju ;)

En ég hef nú ekki mikið að segja hmm, en er að fara í bæinn á morgun. það er afmælis-innflutningspartý hjá guggu small sys. ;) hehe ætlaði að fara á þorrablót en nenni ekki að fara ein og sitja ein á borði með einhverju fólki út í bæ ef þið fattið mig ;) En sorry Helga og Jónas, á alveg eftir að missa af show-inu ykkar :cry: 

Anyway nóg í bili þo ég hafi nú ekki sagt mikið

  


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 19:06:13 / siggas84

Erum við að tal saman eða hvað...???

Erum við að tala aum góðan leik, þarf ég að segja meira.... fyrri hálfleikurinn var snilld hvorki meira né minna, en við duttum aðeins niður í seinni, en náðum þó, sem betur fer, að halda forystunni ;) :haha: En þjálfarinn hjá slóvakíu sat bara og hristi hausinn, á meðan Alfreð hoppaði eins og ég veit ekki hvað og öskraði á strákanna....

En ég styð strákana í blíðu og í stríðu

KOMA SVO STRÁKAR :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 16:54:48 / siggas84

átak átak átak

Já eins og ég sagði síðast þá er ég bara byrjuð í átaki, hætt að borða nammi og solls, er komin í Pilates tíma 2 í viku  og er að spá í að fara í ekkað meira, þolfimitíma einhverja.... Atla sko að koma mér í svaka form sko ;) svo er ég í trimformi líka ;) hehe en þessir pilates tímar eru sko ekki auðveldir, það krefst mikillar einbeitingu,, fyrir þá sem ekki vita hvað pilates er þá eru þetta svona æfingar á bolta, og þetta tekur mikið á... er með harðsperrur í maganum bara alla vikuna... þetta er sko á laugard og svo þriðjudögum, allavega það getur tekið mikið á að halda sér á boltanum og svona....  Hef ætlað að fara út að hlaupa á morgnanna, en bæði veður og smá leti hefur aftrað mér til þess... já leti, sem ég þarf að  komast upp úr 

En annars hef ég ekki mikið að segja, gerði ekki mikið um liðna helgi fórum aðeins í bæinn á sunnud. en vorum ekki lengi og gerðum ekki mikið, hittum ástu aðeins, og hef ég ekki hitt hana lengi lengi, þannig að það var mjög gaman að hitta hana... ;)

Þetta er nóg í bili.... Sí ja ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 19:04:13 / siggas84

Uss... færi ég yfirum með alla þessa fjölmiðla hangadi í rassinum á mér...

Vitiði, ég vorkenni greyjið stelpunni... það er ekki nóg með það að hún missir forræði yfir strákunum sínum, heldur er hún í fréttunum fyrir að máta nærbuxur...  skilurru!!! kannski vill hún það, en kommon sko, maður þarf smá privat tíma ef þið skiljið mig, þetta er ekki eðlilegt, en það kæmi mér svo sem ekkert á óvart ef hún væri bara hálf já eða bara alveg orðin geðveik... yrði ég vitlaus ef ég væri nú stanslaust í fréttum... sigga fór á hressó í gær með óþekktum manni og pantaði sér 2faldan white russian, en kláraði hann ekki.... þúst vá færi ég útúr húsi... veit ekki, en sem betur fer eru ekki svona ágengir papparassar hér á landi....

En aldrei að vita nema að það gerist einhvern daginn

En held að britney veiti ekki af smá hvíld frá þessu öllu saman, Britney skelltu þér til íslands í smá frí hehe :haha::haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 18:38:06 / siggas84

,,,

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla góða ;)

Nýtt ár gengið í garð, og byrjar það bara vel.... ;)

Hvernig voru áramótin hjá ykkur? Mín voru geðveik ;) ég byrjaði náttla á því að setja á botnanna (á gamlársdag)sem að ég gerði um daginn (á aðfangadag) og svona, svo gerði ég heitan rétt... Síðan var farið á brennu kl 6 og flugeldasyningu, hún var bara nokkuð góð, og svo meðan horft var á þá var bara skellt í sig einum köldum  ;) en ekki hvað ;) svo var bara skellt sér í sturtu og gert sig fínan fyrir ball... sem var bara gaman, en frekar fáir enda undanfarin ár hefur verið gjörsamlega stappað en ákveðið var í ár að selja miða fyrir ballið (miðarnir voru seldir 2 dögum fyrir) svo að heimamenn kæmust nú á ball, en ekki selfyssingar eða einhverjir aðrir, en ekki að það sé ekkað slæmt að fólk sem ekki býr hérna komi á ballið, en mér finnst að heimamenn eigi náttla að eiga forgang ;) allavega 

En úff hvað ég borðaði mikið um jólin, mikið af mat, kökum og ís, svo var mikið drukkið líka og í gær var ég svo södd að ég gat valla hreyft mig, og yrði ekki hissa ef ég hefði þyngst um 30 kg... ok kannski ekki svo mikið, en á morgum byrja ég í átakinu mínu ;) og ætla að standa mig vel, ég læt ykkur vita hvernig mér gengur og svona í því ;) það er að segja ef þið hafið áhuga á því, en ef ekki þá fáið þið samt að vita það, því að ég ætla samt að skirfa um það, því jú þetta er nú mín síða... en nóg af bulli....

Vona bara að allir hafi haft það gott um jólin og áramótin


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 20:57:08 / siggas84

Tími til kominn

Held að það sé kominn tími til að blogga smá,  jú jólin liðin og svoleiðis, og 1 af 2 vinnudögum senn á enda og styttist í nýja árið...!! er búin að setja mér markmið eftir áramót, að byrja aftur að fara út að hlaupa og hætta þessu, já eða allavega að minnka nammiátið ;) og já ég ætla mér að standa við það, vil ekki verða einn daginn 300 kg, ok kannski soldið ýkt, en marr veit aldrei... Ætla mér að missa að minnsta kosti 15-20 kg ;) og ætla að vera snögg af því, ég er nebbla ótrúlega fljót að þessu ef ég ætla mér það :haha::haha: og núna er ég alveg staðráðin í að fara í alveg heljarinnar átak ;)

En jólin voru stórkostleg... byrjaði á því á afmælisdaginn minn að vinna náttúrulega kl 10 og til 22 svo eftir það fór ég heim og skellti mér í alveg heljarinnar jólasmákökubakstur, varð bara að gera þetta og öll helgin fór í að baka (og svona rétt að skúra yfir til að allt yrði glans og fint yfir jólin) bakaði piparkökur, mömmukökur og svo sörur, svo fór mín í að gera líka botna og svo daim ístertu ;) var bara í ofurstuði sko ;) kallinn var nú ekkert ánægður að ég væri bara í bakstri alla helgina því hann vildi nú vera að gera ekkað með mér í fríinu, en þar sem allir voru búnir að vera svo uppteknir að það var enginn timi til að baka og mér fannst það bara vera skrítið því að ég hef bara aldrei upplifaði( svo að ég muni) jólin án þess að vera með heimabakaðar smákökur..... En hurðu svo kom hann bara í piparköku skreytingar með guggu og jóni, en jón gafst upp á svo hann á eftir en þá kom bara mamma og gunna í staðin en gunna smurði bara glassúrinn á, nennti ekki einhverju dundi... hehe anyway en talandi um dund, það er rosalegt dund að gera sörur... uss hélt að ég ætlaði aldrei að klára, en gerði ég sko 6 falda uppskrift hehe....

En ég fékk margt skemmtilegt í afmælisgjöf og svo jólagjöf, nenni ekki að telja það upp ;) ásta jólagjöfin þín kom í dag ;) er ennþá á pósthúsinu, en næ í hana á morgun ;)

held að þetta sé gott í bili bara ;) mí out

En ég vil bara segja við alla gleðilega hátið(að vísu soldið seint en anyway, betra seint en aldrei) og vil óska ykkur farsældar á komandi ári ;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 19:43:37 / siggas84

Hvernig getur þetta gerst......????

Ég skil ekki hvernig þetta á að geta gerst... Það er talað um að það eigi að vera aukið eftirlit, sem er greinilega ekki til staðar þar sem að  þetta gerist,  persónulega finnst ´mér að það eigi að líta eftir svona fólki á hverjum degi, það er nú ekki erfitt, get nú kannski sagt að það sé auðvelt, veit nú voða lítið um þessi mál, en hvað eru margar íbúðir þarna, hvernig væri ef þeir sem vinna við að kíkja á fólkið færi nú til þeirra á hverjum degi, þó ekki væri nema líta inn og sjá hvort manneskjan sé jú lifandi, þó ekki væri nú meira sagt...... Finnst alveg hörmung að heyra svona fréttir þar sem einstaklingar hafa verið látnir í marga daga......??? Skil ekki svona

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 21:15:24 / siggas84

Slysin gera sko ekki boð á undan sér :( :( :(

Nei það gera þau sko ekki... en hræðilegt slys varð um helgina þegar keyrt var á hann Kristinn Veigar í Keflavík, hann var 4 ára litli snáðinn, guð blessi minningu hans....:cry::cry: Hann var frændi minn, og er öll fjölskyldan í harmi sleginn..... þetta er hræðilegt, ég vil bara votta fjölskyldu hans samúð mína alla, og vona að allir himins englar vaki yfir þeim og styrki þau á þessum erfiðu tímum

 EN hver gerir svona keyrir á manneskju og keyrir svo í burtu.....??? Aldrei hef ég skilið þetta!!!!!:cry::cry::cry: ok kannski var manneskjan í sjokki eftir að hafa keyrt á lítið barn, en myndi marr ekki gefa sig fram, hallóóó skilurru þú keyrðir á 4 ára barn.... er samt alveg sama þótt að manneskjan hafi farið í sjokk, er ekki að afsaka gjörðir hans/hennar.... þetta er með öllu óafsakanlegt og það er ekki hægt að spóla til baka og breyta því sem gerðist... því miður, væri samt alveg til í það, þá væri svo margt sem að ég myndi vilja breyta og gera öðruvísi..... ekki bara það sem ég hef gert heldur svo miklu meira

En svona af helginni, þá var jólahlaðborð í vinnuni, og var að þessu sinns haldið hér fyrir austan á Hótel Hvolsvelli, það var alveg fínt, en það vantaði eitthvað mikið uppá til að það væri gaman, en efit matinn fóru mjög margir og þar með sýnir það að það hefði þurft að vera einhver skemmtiatriði eða ekkað svona til að halda fólki í stemmingu, en við vinirnir skemmtum okkur bara sjálf... og var það bara fjör,  jónas sýndi okkur hvernig festa má skeið á nefinu... by the way, ekki spurja mig hvernig hann gerir það...???? hef ekki grænan grun... svo var ekkað smá ball ;) það var ekki meira en ok....

En á laugardaginn fórum við öll í bæinn í jólagjafaleiðangur,  keypti að vísu ekki neitt nema kjól í Jane Norman.....og atlaði ég meðal annars að fara í atvinnuviðtal, en þá svaraði strákurinn ekkert...?? :whut::whut: þannig að það fór ekkert lengra en svo fórum við systkinin á Hitman, og var hún bara helvíti góð, bæði fyndinn og mikill hasar :haha: við skemmtum okkur konunglega, svo skelltum við gugga okkur niðrí bæ, og það voru sumir sem svöruðu mér ekkert...  en við systur skemmtum okkur mjög vel, fórum fyrst á prikið að hitta kallinn minn, en það var ALLTOF mikið af fólki þar, þannig að við systur skelltum okkur bara á hressó og hittum þar nokkra mjög svo glaða skota í skotapilsum, þeir voru hérna á íslandi í brúðkaupi hjá vini sínum, en þeir voru mjög hressir að hætti skota ;) ;) og ég elska hvernig þeir tala...

Anyway Sunnudagurinn var bara rólegur... fórum turtildúfurnar bara á rölt í kringluna og svona ekkað svo var skundað heim til frænda hans og náð í Jakub og svo var haldið heim á leið ;) svo var bara horft á friends og svo bara uppí rúm að sofa ;):haha: Svo var ég vakin kl 9:30 í morgun og spurt hvort ég gæti mætt 10 (mæti yfirleitt 12) og ég alveg góðmennskan uppmáluð og sagði auðvita já.... var ekki að alveg að nenna því, drattaðist svo loks á fætur 10 mín í 10 og er svo að vinna til 10... er sem sagt alveg að verða búin ;) hehe held að þetta sé nóg í bili

Bið bara að heilsa

 Im out

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 17:55:08 / siggas84

svo ég sé sammála henni guggu litlu... jólin jóli´n, jólin koma brátt....and so on and so on ;)

Jú styttist óðum í jólin og eins og áður, þá finn ég alveg fyrir því í vinnunni, er bara brjálað að gera að byrja að pakka jólahangikjetinu fyrir landann... besta jólahangi á landinu ;) hehe eða svo finnst mér hef smakkað nokkrar tegundir en ekkert jafnast á við Birkireykta hangikjetið frá SS ;) (hehe smá auglýsing :) ) djúsi og gott. 

Er búin að vera að vinna eins og crazy (var t.d að vinna á fös. frá 10 -23)  + var að skúra í bankanum í síðustu viku, því að gunna skrapp til danaveldis og bað hún mig um að leysa af, ég gerði það enda góðmennskan uppmáluð ;) segi ekki nei við neinn, eða svona skiljiði mig, hjálpa öllum með minni bestu getu :haha:

Svo var mín bara dugleg um helgina, eldaði kjúlla fyrir mig og jón og svo fengum við okkur bara ís og höfðum það bara gott systkinin þar sem allir voru í rvk, pabbi tók mömmu nebbla með sér í óvissuferð á laugardaginn og svona í tilefni að afmæli hennar á fimmtudaginn næstkomandi (nánar tiltekin 29. nóv) :) fóru þau út að borða með vinafólki og svo á Kim Larsen tónleikana. Svo morgunin( á sun.) eftir flaug pabbi til London með bankanum á leik west ham og tottenham, og svo til baka um kvöldið (svona eru þessir bankamenn, skjótast bara út á einhverja leiki... ;) ) allavega svo var planið að reyna að baka eitthvað á sunnudaginn, en allt kom fyrir ekki, þær mæðgur gugga og mamma voru svo seint á ferðinni að það var bara ekkert hægt að gera, þannig að við turtildúfurnar horfðum bara á american gangster, hún er alveg fín, en mer fannst hún frekar löng og langdregin á köflum.... allavega

HURÐU merkilegt nokk, en um helgina þá ætlar mín já eða við að koma í bæinn um helgina.... ætla líka að reyna að byrja í jólagjafa dæminu og svona ekkað hitta vini og vandamenn... gera ekkað skemmtilegt, kem reyndar ekki fyrr en á laugardaginn þar sem það er jólahlaðborð hjá mér á föstudaginn ;) svo að ég verð að nota tímann vel á lau. og reyna að leggja snemma af stað, helst fyrir hádegi (endar samt örugglega með því að ég fari ekki af stað fyrr en 2 eða eitthvað sko, anyway, er á fullu í að pakka hangikj. as i write... en þarf að fara að halda áfram að gera eitthvað að viti ;)

adios :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 22:30:43 / siggas84

ákvað að henda þessu hérna inn, smábrandari ;)

Ég er viðkvæmur, sköllóttur maður og með staurfót. Ég fékk boð fyrir nokkrum vikum um að mæta í partýið í kvöld hjá drottningunni. Þar sem öll partý hljóta að vera grímuböll ákvað ég að mæta þannig tilhafður en...mér datt enginn grímubúningur í hug, svo ég ákvað að skrifa bréf til búningaleigu einnar og fá hjá þeim tillögur að búningi sem gæti falið á mér skallann og staurfótinn.

Nokkrum dögum seinna fékk ég tölvupóst:

Kæri herra,

Við leggjum til að þú farir sem sjóræningi. Sjóræningjahatturinn kemur til með að fela á þér skallann og með staurfótinn lítur þú alveg út eins og sjóræningi.

Mér fannst þetta satt að segja hræðileg móðgun, þar sem þeir höfðu talað um að nýta fötlun mína í búninginn. Þess vegna settist ég niðurog skrifaði frekar harðort kvörtunarbréf til búningaleigunnar. Viku seinna fékk ég svar, annan tölvupóst:

Kæri herra,

Afsakaðu þetta með staurfótinn. Ef við hefðum vitað að þetta væri svona viðkvæmt, þá hefðum við strax lagt til að þú færir sem munkur. Munka kufl er svo síður að hann felur staurfótinn og með skallann, þá lítur þú alveg úteins og alvöru munkur.

Núna varð ég alveg brjálaður. Skítt með staurfótinn, en að ætlast til að ég myndi nota skallann á mér sem hluta af búningi tók alveg steininn úr. Því skrifaði ég núna virkilega harðort kvörtunarbréf til bölvaðrar búningaleigunnar.

Daginn eftir kom einn tölvupósturinn frá þeim:

Herra,

Finndu stóra fötu af karamellu. Helltu karamellunni yfir sköllóttan hausinn á þér, stingdu staurfótnum upp í rassgatið á þér og farðu sem sleikipinni!


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 16:26:59 / siggas84

haha....

The doctor said,

"Joe, the good news is I can cure your headaches. The bad news is that

it will require castration. You have a very rare condition, which causes

your testicles to press on your spine and the pressure creates one hell

of a headache. The only way to relieve the pressure is to remove the

testicles."

Joe was shocked and depressed. He wondered if he had

anything to live for. He had no choice but to go under the

knife.

When he left the hospital, he was without a headache for

the first time in 20 years, but he felt like he was missing an important

part of himself. As he walked down the street, he realized that he felt

like a different person. He could make a new beginning and live a new

life.

He saw a men's clothing store and thought, "That's what I

need... a new suit."

He entered the shop and told the salesman, "I'd

like a new suit."

The elderly tailor eyed him briefly and said,

"Let's see... size 44 long."

Joe laughed, "That's right, how did

you know?"

"Been in the business 60 years!" the tailor

said.

Joe tried on the suit, it fit perfectly. As Joe admired

himself in the mirror,

the salesman asked, "How about a new

shirt?"

Joe thought for a moment and then said,

"Sure."

The salesman eyed Joe and said, "Let's see, 34 sleeves

and 16-1/2 neck."

Joe was surprised, "That's right, how did you

know?

"Been in the business 60 years."

Joe tried on the

shirt, and it fit perfectly.

Joe walked comfortably around the

shop, and the salesman asked, "How about some new underwear?"

Joe

thought for a moment and said, "Sure."

The salesman said, "Let's

see... size 36."

Joe laughed, "Ah ha! I got you. I've worn a size

34 since I was 18 years old."

The salesman shook his head, "You

can't wear a size 34. A size 34 would press your testicles up against

the base of your spine and give you one hell of a headache."

New

suit - £400

New shirt - £36

New underwear - £6

Second Opinion -

PRICELESS!  :haha::haha::haha::haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan
Dagsetning
22. mars 2010
RSS tengill
Vinnan